30.6.2009 | 22:40
Sahlgrenska góður spítali
Þeir sjúklingar sem þurfa líffæraígræðslu verða ekki sviknir á Sahlgrenska. Þar vinnur hópur öflugra lækna og vísindamanna, enda er þetta háskólasjúkrahús þar sem margar meiri háttar uppgötvanir hafa verið gerðar. Á Sahlgrenska var til dæmis fundinn upp titan pinninn sem nú heldur uppi tönnum margra Íslendinga. Aðbúnaður fyrir aðstandendur fremur fábrotinn, en sjúklingar fá 100% þjónustu. Borgin er falleg og fólkið elskulegt þegar kemur að því að fá að fara aðeins út. Megi þeim sem þurfa á þessari læknisþjónustu að halda ganga vel.
Samið um líffæraígreiðslur við Gautaborg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.